Ferð
að hætti víkinga
köllum við sérútbúnar
ferðir fyrir minni hópa
(6-15 manns). Þú getur
slegist í hópinn. Valið
stendur á milli gönguferða,
reiðtúra og þess
sem víkingarnir létu
sig ekki dreyma um: þægilega
fólksflutningabíla.
Einnig kemur til greina að útbúa
sérsaumaðar ferðir
fyrir smærri hópa. Vissulega
upplifir þú hið stórbrotna
landslag Vestfjarðanna í
ferðum okkar en þar á
ofan bætist svo sagan sem þar
átti sér stað. Sögumenn
úr okkar röðum gerast
sérstaklega mælskir þegar
sest er við varðeld um bjartar
sumarnætur. Hér sérð
þú nánari útlistun
á ferðunum sem til boða
standa. Aðrar ferðir sem boðið
er upp á um Vestfirði er
hægt að bóka sig
í hjá upplýsingamiðstöðinni
Vesturferðum.