Nú þegar
er orðin hefð fyrir því að haldin sé sumarhátíð sem félagasamtök á Þingeyri
og nærsveitum standa að. Þessi hátíð heitir “Dýrafjarðardagar”.
Sumarið 2003 tók sú hátíð á sig nokkurn víkingabrag og stefnt
er að því að sú þróun haldi áfram.
Dýrafjarðardagar
verða haldnir (eins og alltaf) fyrstu helgina í júlí
Vikuna fyrir Dýrafjarðardaga verður margt í gangi á vegum
félagsins. Þá verða haldin námskeið í margs konar handverkstækni.
Settu þig í samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um það sem í boði
verður.
|