Logo Víkingar á Vestfjörðum Vestfjarðir SITE MAP
Gísla Saga Súrssonar Gísla Saga shadow1 shadow2  
velkomin víkingarfélag viðburðir netverslun ferðamennska viðbrogð  
border-left
  Íslenska   Deutsch   English
 FERÐAMENNSKA Á VESTFJÖRÐUM

 

 

 

Hin sæbröttu fjöll, eyðilegu heiðar og oft á tíðum lygnu firðir Vestfjarða mynda heillandi landslag sem á sér ekki sinn líka. Þetta er elsti hluti Íslands, samkvæmt kenningum jarðfræðinnar. Kynslóð fram af kynslóð hafa íbúar svæðisins lært að lifa með náttúruöflunum, sem oft á tíðum geta verið óblíð.
Það má segja að nokkurs konar “útlaga-rómantík” einkenni svæðið í hugum margra. Hún verður í síauknum mæli ástæða þess að fólk kemur aftur og aftur til að skoða Vestfirði. Af nógu að taka þegar litið er yfir sögu og menningu íbúanna. Þaðan koma margar af litríkustu persónum Íslandssögunnar.

Gísla saga Súrssonar spannar stórt svæði af fjörðunum og þar er sögustöðunum lýst af kunnáttu og nákvæmni. Allt fram á 20. öldina voru atvinnuhættir á þessum slóðum hinir sömu og voru á dögum Gísla Súrssonar. Þegar svo tækni nútímans hóf innreið sína á Vestfirði, voru sumir staðir þegar komnir í eyði. Þess vegna líta ýmsir sögustaðanna nánast eins út og þeir gerðu á meðan Gísli Súrsson gekk þar um. Vegna hinnar ósnortnu náttúru sem þú getur svo víða notið á Vestfjörðum, hefur þú tækifæri til að komast í snertingu við söguþrungna fortíð svæðisins. Sagan lifnar við á sviði vestfirsks landslags.

Skipulegðu ferð við þitt hæfi til Vestfjarða. Samstarfsaðilar okkar í Vesturferðum verða þér innanhandar. Upplýsingamiðstöð þeirra stendur þér ávallt opin. Og á netinu finnur þú mikið magn upplýsinga um Vestfirði, sem gætu komið þér að liði.



 
rammi1
 
Gott veður í Arnarfirði
Kvöld á Ströndum


Samband
Bók
VELKOMIN  VÍKINGAFÉLAG   VIÐBURÐIR    NETVERSLUN   FERÐAMENNSKA   VIÐBRÖGÐ    VEFTRÉ  GESTABÓK 

design©2003-2008SA, NI                        copyright 2008Víkingar á Vestfjörðum 
rammi2 rammi3 rammi4 rammi5
 
 

Last
updated
09.06.2008