|
Í
nánasta umhverfi Þingeyrar
eru fjölmargir staðir sem
enginn má missa af að
skreppa til:
-
Hrafnseyri í Arnarfirði
og safnið þar.
Fæðingarstaður
frelsishetjunnar Jóns Sigurðssonar
er opið yfir sumartímann
frá afmælisdegi hans,
17. júní ár
hvert. Þar er hægt
að fá kaffi, kökur
og minni máltíðir.
Til að komast til Hrafnseyrar
þarf að aka hina bröttu
og krókóttu leið
yfir Hrafnseyrarheiði. Úr
því að yfir heiðina
er komið, munar ekki miklu
að skreppa u.þ.b. 40
mínútna leið
að fossinum
Dynjanda. Hann er fagur
langt að séð en
göngutúr frá
bílastæðinu upp
að honum er einnig fyrirhafnarinnar
virði.
- Vitinn
við Svalvoga er í
um 20 km. fjarlægð frá
Þingeyri. Hvort sem farið
er akandi eða gangandi, þá
er umhverfið ægifagurt.
Komast má á jeppum
allan hringinn fyrir nesið
en þá þarf
að afla sér upplýsinga
um ástand vegarins fyrirfram,
auk þess sem gæta
þarf sjávarfalla
á tilteknum kafla leiðarinnar.
Hringleiðin er ekki fær
fólksbílum.
-
Skrúður, Hlíð
og Ingjaldssandur.

Til að komast á
þessa staði þarft
þú að fara af
vegi nr. 60 inn á veg nr.624
í átt að Núpi.
Skammt frá Edduhótelinu
er skrúðgarðurinn
Skrúður. Þar
komast áhugamenn um plöntur
í feitt. Garðurinn
er búinn að vera til
síðan árið
1905, þegar Sigtryggur Guðlaugsson
prestur bjó hann til. Enn
þann dag í dag er
þessi skrúðgarður
gott dæmi um það
sem hægt er að áorka
í garðrækt á
norðurslóðum. Prestsetrið
Hlíð, við hliðina
á hótelinu, gefur
innsýn í líf
fólks af millistétt
um miðbik síðustu
aldar. Sé ekið framhjá
Núpi og yfir Sandsheiði,
er komið niður á
Ingjaldssand (u.þ.b.
40 mínútna akstur).
Síðasti bærinn
sem þú kemur að,
sá sem næstur er
sjónum, heitir Sæból.
Þar er framleitt og selt
handverk af eina íbúa
staðarins. Einnig má
kaupa þar kaffi og meðlæti.
Meðmæli: Ingjaldssandur
er einn fárra aðgengilegra
staða á Vestfjörðum,
þar sem hægt er að
fylgjast með miðnætursólinni.
Það getur borgað
sig að skreppa þangað
að næturlagi yfir hásumartímann.
|
|