|
Dagskrá
Skýrsla stjórnar
Kosning nýrrar stjórnar
Önnur mál:
Viðurkenning Róta
Kynning á heimasíðugerð Róta
Tillaga um stofnaðild Róta að Háskólasetri Vestfjarða
Þjóðahátíð 2006?
Aðalfundur Róta haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
17.nóvember
2005, klukkan 20:00.
Formaður Valdimar Halldórsson bauð gesti velkomna. Samþykkt var að Guðrún Finnbogadóttir
tæki að sér fundarstjórn sem hún og gerði. Og Guðrún S.Sigurðardóttir
ritari. 1. mál Skýrsla stjórnar
Formaður flutti skýrslu stjórnar
Skýrsla gjaldkera
Reikningar félagsins samþykktir samhljóða sem og skýrsla formanns. Kom að kosningu í stjórn
Stungið uppá Pálínu Björnsson ( Pom) í stjórn , Stína ætlar að vera
henni innan handar og Anna Smoter var kosin í stjórn. Fram kom að Valdimar Halldórsson , Guðrún
S.Sigurðardóttir og Dorothee Lubecki
bjóða sig áfram fram í stjórn
. Ákveðið að Gréta verði í vara stjórn, Ævar Einarsson verði vara vara
og Guðrún Finnbogadóttir þar til vara.
Undir liðnum önnur mál kom fram að aðeins annar hver tælendingur fékk aðalfundarboð,
eða fær boð frá félaginu. Uppúr dúrnum kom að það fólk sem
ekki fær póst er líklega ekki í félaginu og úr því þarf að bæta. Formanninum
falið að koma eyðublöðum til Guðrúnar Finnbogadóttur en hún ætlar að innrita þá tælendingar
sem þess óska í félagið.
Þá kom að hrósi Róta.
Það er orðin hefð á aðalfundi að veita viðurkenningu fyrir eftirtektarverða atburði
eða starf. Í ár hafa Rætur ákveðið að veita nýstofnuðu Félagi
Pólverja Hrós fyrir það að hafa stofnað félagið. Það sé mjög
mikilvægt. Nú verði hægt að leita til félagsins og eins getur félagið leitað til
annarra .... Til hamingju pólverjar . Anna Smoter tók við viðurkenningu úr hendi formannsins
fyrir hönd félagsins.
Þá kynnti Nína Ivanova vinnu sína við heimasíðugerð fyrir Rætur. Fram
kom að ef
hýsingin er vestfirdir.is/raetur, þá er hýsingin frí. Nína biður um
fleiri heimildir til að setja inná heimasíðuna sem fundurinn var sammála um að heimasíðan
væri glæsileg. Flott heimasíða , fólk ánægt.
þá lögð fram tillaga að stofnaðild Róta að Háskólasetri Vestfjarða.
Formaðurinn flutti tillögu um það og tjáði vilja sinn. Las hann bréf frá Ingu
Dan sama efnis ( bréfið vantar í fundargerðina()Pernilla flutti kveðju frá Magnúsi Ólafs
Hansyni með þeim skilaboðum að ef eitthvað ákveðið verði að gera eitthvað annað við peningana
en að gerast stofnaðili að Háskólasetri Vestfjarða, þá sé hann hættur í Rótum.
) Guðrún S ekki sammála mikilvægi félagsins að stofnaðild . Umræða um bréfið og
tillöguna. Aðalfundur samþykkti tillögu formanns og Rætur hafa því ákveðið að gerast
stofnaðili að Háskólasetri Vestfjarða. Kostnaður er 150 þúsund krónur sem
félagið á í formi styrks frá Menntamálaráðuneytinu.
Þá önnur tillaga Á að halda þjóðahátíð árið 2006
? Fimm ár síðan síðasta þjóðahátíð var haldin á Ísafirði. Tælendingar
vilja vera með !! umræða . Ákveðið að kanna vilja þeirra þjóðarbrota
sem hér búa en dagsetning er áætluð í kringum dag sameinuðu þjóðanna
gegn fordómum . Pernilla sem unnið hefur við hátíðar hér vestra samþykkti að kynna
sér málið og koma fyrirhuguðu starfi í gang.
Fundarstjóri sleit síðan fundi klukkan 22:05 Guðrún
|