language rætur
        

                         ©NínaIvanova2006

Félag.



Skýrsla stjórnar Róta :

Frá síðasta aðalfundi, sem haldinn var 28. nóvember 2004, hefur stjórn Róta fundað ellefu sinnum.

Á fyrsta stjórnarfundinum sem haldinn var í desember það ár var rætt um

  •   að halda pólskt kvöld, filippinskt kvöld og jafnvel fleiri kvöld með öðrum þjóðarbrotum í fararbroddi
  •   að halda fjölskyldufagnað fyrir fiskverkafólk í júní 2005 því vænta mátti meiri þátttöku og víðar að úr fjórðungnum en verið hafði árið áður þegar samskonar fagnaður var haldinn seint í ágúst.
  • að athuga hvort pólverjar á svæðinu gætu hugsað sér að halda kynningu á pólskum páskahefðum.
  • að athuga hvort hægt væri að fá hljómlistarfólk frá ýmsum löndum, sem búsett væri hér á svæðinu til að troða upp.

Að síðustu var komið inná þýska uppákomu í nafni Róta.

Strax í janúar var hafist handa. Pólverjar búsettir á norðanverðum Vestfjörðum tóku strax vel í að halda pólskar páskahefðir   og gerðu gott betur en það. Stofnað hefur verið Félag Pólverja á Vestfjörðum og óskum við þeim hjartanlega til hamingju með það.   Kynning á pólskum páskahefðum tókst mjög vel og vonast er til að það verði að árlegum viðburði á skíðaviku Ísfirðinga.

Þann 12. mars síðastliðinn var stofnfundur Háskólaseturs Vestfjarða stofnað og ákvað undirritaður að skrifa undir stofnun háskólasetursins með fyrirvara um að Rætur samþykktu að gerast stofnaðilar að setrinu, en stofngjaldið er 150.000 kr. Í umsókn sinni um styrkveitingu til Menntamálaráðuneytisins lét formaður þess getið að Rætur hefðu áhuga á að gerast stofnfélagi að Háskólasetrinu á sama hátt og félagið var einn af stofnaðilum Fjölmenningarsetursins á sínum tíma.

Á stjórnarfundinum þar á eftir var hins vegar ákveðið að leggja málið fyrir aðalfund og þess vegna er tillagan um stofnaðild Róta að Háskólasetri Vestfjarða sett fram hér á þessum fundi.

24. apríl í vor var haldið upp á Song Kran hátíð tælendinga. Hófst hún með skrúðgöngu þar sem gengið var frá Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar niður að Grunnskólanum, þar sem boðið var upp á mat og önnur skemmtiatriði. Var hátíðin mjög vel sótt og vonandi verður hún að árlegri hefð héðan í frá.

Í maí síðastliðinn fékk stjórn Róta Önnu Wojtynska frá Póllandi í heimsókn, sem sagði frá því að um mánaðamótin september/október á næsta ári (2006) stendur til að halda Pólska menningarhátíð hér á landi.   Þar á að kynna pólska menningu og ætlunin er að fá íslenskt fólk til að taka þátt, þar á meðal Rætur. Ýmsir opinberir aðilar í Póllandi, Reykjavíkurborg og einstaklingar munu styrkja þetta verkefni. Anna áleit að þessi hátíð gæti verið tækifæri fyrir ,,vestfirska" pólverja að koma með sínar hugmyndir að uppákomum, hér fyrir vestan á meðan þessir pólsku dagar væru í Reykjavík. Hún kom fram með margar hugmyndir. Til dæmist gæti veitingahús hér á staðnum haft pólskt kvöld með pólskum réttum og tónlist. Pólskir smáréttir, öl og þess háttar gætu verið á Langa Manga. Einnig gæti farið fram íþróttakeppni milli Pólverja , Íslendinga , Tælendinga og fleiri. Ar að auki mætti halda námskeið þar sem pólskir vestfirðingar kenndu heimamönnum að dansa, matreiða pólska rétti eða kökur, búa til dæmigerða pólska klippimyndir, mála páskaegg o.s.frv.

Eins og áður sagði stóð til að halda sumarhátíð fiskvinnslufólks í sumar. Undirbúningur að hátíðinni gekk vel en þá kom á daginn að enginn áhugi virtist vera á þessari hátið og þess vegna var hætt við að halda hana.

Þá voru Rætur aðili að stórmerkilegri Alþjóðlegri Kvikmyndahátíð sem haldin var hér á landi um mánaðamótin september október nú í haust. Mikill undirbúningur, bréfaskriftir , auglýsingar og styrkbeiðnir voru sendar út. Stóð til að fá 12 til 15 myndir hingað vestur . En þá kom babb í bátinn.   Verið var að endurnýja tæki og tól í Bíóhúsinu á Ísafirði og var það ekki tilbúið til notkunar þann tíma sem   kvikmyndahátíðin stóð yfir. Þess vegna vorum við því miður ekki með að þessu sinni

 

En þýskir kvikmyndargerðarmenn komu vestur og sýndu á Flateyri heimildarmynd sína um Þorpið okkar í Pakistan , þaðan sem brúðusafnið er upprunnið. Og var það huggun harmi gegn.

Að síðustu má geta þess, að verið er að vinna að heimasíðu Róta og verður sú vinna kynnt fyrir okku hér á fundinum.

   
is en de pol thai